Taktvís
Prófa

● Komið út · íslenskt app

Sjáðu þinn eigin takt.

Taktvís er app fyrir hvern þann sem vill sjá sinn eigin takt. Það er byggt með ADHD, einhverfu og geðrænan vanda í huga — en þú þarft enga greiningu. Þú skráir svefn, orku, lyf og dagsform á tuttugu sekúndum á dag og átt eftir þrjá mánuði yfirsýn sem þú getur tekið með þér í næsta viðtal.

iPhone og Android · á íslensku, ensku og pólsku

Svefnskráning · 60 nætur Svefn Vaka

Hver lína er ein nótt, frá kvöldi til kvölds. Svona lítur svefn út þegar hann fer að reka — eitthvað sem er nánast ómögulegt að muna eftir á, en augljóst þegar þú sérð það. Myndin hér að ofan sýnir tilbúin dæmigögn.

Taktvís er komið í App Store

iPhone-útgáfan er komin út. Android-útgáfan er í yfirferð hjá Google en þú getur sótt hana beint hér á meðan.

Svona virkar það

  1. 1

    Skráðu á 20 sekúndum

    Kvölds eða morgna: hvernig þú svafst, líðan og orka á einföldum kvörðum og hvort lyfin voru tekin. Allt með smellum.

  2. 2

    Sjáðu mynstrið

    Eftir nokkrar vikur sérðu svefn, orku og líðan hlið við hlið — hvort takturinn er að reka og hvað fylgir góðum dögum og slæmum.

  3. 3

    Taktu það með þér

    Búðu til PDF yfir tímabilið sem þú velur og sýndu lækni, sálfræðingi eða öðrum sem þú treystir. Þú ræður hvað fer með.

Fyrir hverja?

Taktvís er hannað fyrir fólk sem á erfitt með að halda utan um eigin takt — en þú þarft enga greiningu til að nota það.

ADHD

Þegar dagarnir renna saman og erfitt er að muna hvað virkaði — til dæmis meðan verið er að stilla af lyf.

Einhverfa

Rólegt og fyrirsjáanlegt viðmót, engar óvæntar tilkynningar og þú stjórnar sjálf/ur hvað er skráð.

Geðhvörf og lyndisraskanir

Svefn og dægurtaktur skipta miklu. Taktvísitalan byggir á IPSRT-nálguninni og sýnir reglu í daglegu lífi.

Svefn og orka

Fyrir alla sem vilja sjá hvernig svefn, orka og líðan haldast í hendur yfir vikur og mánuði.

Hvað appið gerir

SKRÁNING

Tuttugu sekúndur á dag

Allt með smellum: svefn, orka, líðan, lyf tekin eða ekki. Enginn innsláttur nema þú viljir. Appið sækir svefninn sjálfkrafa úr símanum eða úrinu ef þú leyfir það.

YFIRSÝN

Þín gögn, þín mynd

Þú sérð þínar eigin skráningar hlið við hlið yfir vikur og mánuði. Þú merkir sjálf/ur það sem þú vilt fylgjast með. Appið dregur engar ályktanir fyrir þig.

VERKEFNI

Eitt í einu

Heilahreinsun fyrir allt sem hringsólar, og svo eitt verkefni á skjánum í einu með tímamæli. Fastar rútínur ef þú vilt þær, engar ef þú vilt þær ekki. Byggt fyrir daga þegar listi er of mikið.

SKÝRSLA

Fyrir næsta viðtal

PDF með þínum skráningum yfir valið tímabil. Þú ræður hvað fer með og hverjum þú sýnir það. Ekkert er sent neitt sjálfkrafa.

Hvað appið er ekki

Spurt og svarað

Þarf ég greiningu til að nota Taktvís?

Nei. Appið er byggt með ADHD, einhverfu og geðrænan vanda í huga en hentar öllum sem vilja sjá sinn eigin takt.

Hver sér gögnin mín?

Enginn nema þú. Gögnin eru geymd í símanum þínum, sjálfgefið fer ekkert í ský og við sjáum ekki neitt. Samstilling er valfrjáls og slökkt í upphafi.

Kemur Taktvís í staðinn fyrir lækni eða meðferð?

Nei. Taktvís er ekki lækningatæki og greinir hvorki né spáir. Það hjálpar þér að muna og sýna — samtalið við fagfólk er áfram aðalatriðið.

Get ég sýnt lækninum mínum gögnin?

Já. Þú býrð til PDF yfir valið tímabil og ræður sjálf/ur hvað fer með og hverjum þú sýnir það. Ekkert er sent neitt sjálfkrafa.

Hvað ef ég gleymi að skrá?

Ekkert mál. Engir streikar sem brotna og engar tilkynningar sem nöldra. Dagur sem gleymist er bara dagur sem gleymist.

Getur appið sótt svefninn sjálfkrafa?

Já, ef þú leyfir það sækir Taktvís svefninn úr símanum eða úrinu svo þú þurfir ekki að skrá hann.

Hvaða símar og tungumál?

Taktvís er í App Store fyrir iPhone. Android-útgáfuna má sækja beint hér á meðan hún er í yfirferð hjá Google. Appið er á íslensku, ensku og pólsku.

Hjálpaðu okkur að byggja rétta hlutinn

Þrjár spurningar, nafnlaust. Við geymum ekkert sem tengir svörin við þig — hvorki netfang, IP-tölu né tímasetningu. Þetta ræður því hvað við byggjum fyrst.

Hvað á við um þig?

Þegar þú hittir lækni eða sálfræðing, hvernig gengur að lýsa síðustu vikum?

Hversu oft heldurðu að þú myndir í raun skrá í app sem tæki 20 sekúndur?